Samruni SAH Afurða, Kjarnafæðis og Norðlenska
Eigendur SAH Afurða, Kjarnafæðis og Norðlenska hafa komist að samkomulagi um helstu skilmála samruna félaganna. Kjarnafæði er í eigu bræðranna Eiðs og Hreins Gunnlaugssona, en Norðlenska er í eigu Búsældar, sem er í eigu um 500 bænda á Íslandi.
Með samruna félaganna eru eigendur að bregðast við breytingum í rekstrarumhverfi matvælaiðnaðar undanfarin misseri. Það er mat eigenda félaganna að sameinað félag sé betur í stakk búið til að veita viðskiptavinum sínum og birgjum, ekki síst bændum, góða þjónustu á samkeppnishæfu verði.
Félögin hafa átt í viðræðum um samruna frá því á haustmánuðum 2018 en líkt og fram hefur komið hafa félögin nú náð saman um þau atriði sem útaf stóðu.
Samkomulag um samruna félaganna er með fyrirvara um samþykki Samkeppnisyfirvalda og samþykki hluthafafundar Búsældar.
Íslandsbanki veitir samrunafélögunum ráðgjöf í samrunaferlinu.