 |
Welcome
to the website of SAH Afurðir ehf. This
website is provided for in Icelandic, German
and English, reflecting the reach of our business
relationships. For information in your language
use the language buttons provided for above.
Fréttir
|
 |
Verð á lambakjöti í Noregi
11. apríl 2012 |
Mikil umræða og fjölmiðlafár hefur orðið vegna verðs á íslensku lambakjöti í Noregi. Að halda því fram að verið sé að niðurgreiða lambakjöt inn á Noregsmarkað er fjarstæða. Noregsmarkaður er sá erlendi markaður í Evrópu sem greiðir hvað best verð fyrir íslenskt lambakjöt. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands, er meðalverð fyrir heila lambaskrokka til Noregs vel yfir 1000 kr. kg. Rétt er að benda á að þá er eftir að saga kjötið niður, pakka því, dreifa því í verslanir leggja á það virðisaukaskatt og svo að sjálfsögðu álagningu verslunar.
Það sem hér er á ferðinni er dæmigerður áróður þeirra sem vilja koma höggi á íslenskan landbúnað. Einhver ágætur íslendingur er heppinn og lendir á útsölu í einhverri verslun í Noregi. Þar er t.d. ekki mögulegt fyrir verslanir að skila þeim vörum sem eru að renna út á líftíma til framleiðenda. Verslunin verður að taka ábyrgð á innkaupum sínum. Sennilega hefur umrætt lambalæri verið að nálgast lok líftíma og verslunin þurft að selja það.
Að frétt sem í raun er engin frétt skuli vera fyrsta frétt í marga fréttatíma hjá ákveðnu fjölmiðlaveldi, lýsir vel einbeittum vilja ákveðinna þjóðfélagsafla til að koma höggi á íslenskan landbúnað. Öllum brögðum er beitt og meðölin óvönduð.
Sig. Jóh.
|
Aðalfundir
26. mars 2012 |
Minnum á að aðalfundir SAH Afurða og Sölufélags Austur Húnvetninga verða haldnir á Pottinum og pönnunni, (Eyvindarstofu) þriðjudaginn 27. mars og hefjast kl. 12:00 með léttum hádegisverði.
Allir innleggjendur og hluthafar velkomnir.
Sig. Jóh.
|
Páskaslátrun sauðfjár
5. mars 2012 |
SAH Afurðir bjóða uppá páskaslátrun sauðfjár þann 28. mars nk. Þeir sem hafa hug á að nýta sér þetta eru vinsamlega beðnir að hafa samband við sláturhússtjóra í síma 896-2280 sem fyrst. Viðskiptakjör eru þau sömu og á liðnu hausti, og er þá miðað við 100% verð.
Sig. Jóh.
|
Aðalfundur
29. febrúar 2012 |
Aðalfundur Sölufélags Austur Húnvetninga verður haldinn á skrifstofu félagsins, þann 14. mars og hefst kl. 08:00. Þar sem 1/3 hluti félagsmanna þarf að mæta til að fundurinn verði löglegur, og mjög ólíklegt að sú mæting náist, verður boðað til nýs fundar innan þriggja vikna.
Stjórnin
|
Mikil nautgripaslátrun
27. desember 2011 |
Mjög mikil nautgripaslátrun hefur verið í haust hjá SAH Afurðum. Sem dæmi má nefna að í nóvember mánuði var slátrað samtals 217 nautgripum. Er það með almesta móti. Mikil slátrun hefur einnig verið nú í desember og ljóst að nautgripaslátrun hjá félaginu á yfirstandandi ári verður sú mesta sem verið hefur í nokkuð mörg ár. Ungneyti eru þó heldur léttari en verið hefur og einnig heldur yngri. Ljóst má vera að til að nautakjötsframleiðslan nái að standa undir þörfum innanlandsmarkaðar þarf að koma til aukin framleiðsla, hvort heldur sem það verður gert með fjölgun gripa eða sem hlýtur að teljast spennandi valkostur, með innflutningi annars kúakyns. Það þyrfti þá að vera kúakyn sem hentaði til kjötframleiðslu.
Sala nautgripakjöts hefur gengið ágætlega og eru bændur hvattir til að hafa samband hafi þeir gripi til slátrunar.
Sig. Jóh.
|
Jólakveðja
23. desember 2011 |
Starfsfólk SAH Afurða sendir viðskiptavinum sínum nær og fjær innilegar jólakveðjur. Bestu óskir um farsælt komandi ár, með þökk fyrir viðskiptin á liðnum árum.
Sig. Jóh.
|
Sauðfjárslátrun
16. nóvember 2011 |
Sauðfé verður slátrað hjá SAH Afurðum þriðjudaginn 29. nóvember. Bændur eru hvattir til að hafa samband við sláturhússtjóra sem fyrst.
Sig. Jóh.
|
Sauðfjárslátrun lokið
31. október 2011 |
Sauðfjárslátrun hjá SAH Afurðum lauk þetta haustið í dag á hádegi. Aldrei fyrr hefur jafnmörgu fé verið slátrað hjá félaginu á einu ári, og er heildarslátrun haustsins komin í um 106.300 fjár. Meðalvigt endaði rétt neðan við 16 kg. sem er svipað og í fyrra.
Seinna í nóvember verður auglýstur sláturdagur og eru bændur hvattir til að hafa samband við sláturhússtjóra hafi þeir þá heimt fé sem þarf að færa til slátrunar.
Sig. Jóh.
|
Slátrun komin í 100.000 fjár
25. október 2011 |
Sá áfangi náðist hjá SAH Afurðum í dag að slátrun sauðfjár fór í fyrsta skipti yfir 100.000 fjár. Enn er eitthvað eftir og unnið verður á fullum afköstum fram á föstudag þegar slátrun lýkur. Þetta er merkur áfangi í sögu félagsins, en það hefur verið ljóst í nokkurn tíma að til þessa kæmi. Gripur númer 100.000 reyndist vera hinn vænsti dilkur frá Jóni Inga í Fagranesi.
Þessi árangur væri ekki mögulegur nema með samstilltu átaki einstaklega öflugs starfsfólks, sem lagt hefur mjög hart að sér til að þessi áfangi næðist. Flestir starfsmenn hafa starfað fyrir félagið í margar vertíðir og því öllum hnútum kunnugir.
Brátt hverfa flestir erlendir starfsmenn til síns heima og þökkum við þeim kærlega fyrir samstarfið þetta haustið og vonumst til að sjá sem flesta að ári liðnu.
Sig. Jóh.
|
Vænir dilkar
24. september 2011 |
Í gær þann 23. september var mesti vænleiki innlagðra dilka hjá SAH Afurðum sem um getur. Meðalfallþungi dilka var 18.86 kg. sem er það langmesta sem elstu menn muna, og ekki eru til skýrslur um meiri fallþunga á einstökum degi í sögu félagsins. Þetta er athyglisvert ekki síst í ljósi erfiðrar veðráttu í vor, en það virðist ekki koma niður á vænleika. Flestir dilkana voru úr Hörgárdal og af Ströndum.
Sig. Jóh.
|
Sauðfjárslátrun í fullum gangi
21. september 2011 |
Sauðfjárslátrun hjá SAH Afurðum er nú í fullum gangi og gengur verkið mjög vel fyrir sig. Samhent lið fólks vinnur við slátrunina og hefur verkun og frágangur kjötsins sennilega sjaldan verið betri. Gallatíðni er með alminnsta móti og verkun á allan hátt til fyrirmyndar.
Mikil áhersla er lögð á nýtingu aukaafurða og er svo komið að nánast allt er hirt sem hægt er að hirða. Unnið er að verkefni um tilraunavinnslu á löppum og hausum fyrir afríkumarkað. Nokkuð mikið þróunarstarf er þar fyrir höndum en mikilvægt er að unnt verði að finna leiðir til að nýta þessa skrokkhluta til fulls á komandi árum.
Þrátt fyrir kalt vor eru dilkar með allra vænsta móti og því ljóst að innvegið kjötmagn verður líklega allnokkuð meira en verið hefur undanfarin ár.
Sig. Jóh.
|
Verðhækkun á folaldakjöti
13. september 2011 |
Ákveðið hefur verið að verð á folaldakjöti verði 385 kr.kg. nú í september og október. Þetta er mikil verðhækkun frá síðasta ári og alls óvíst um hvernig kjötmarkaðurinn muni taka við þessari verðhækkun. Því er ekki hægt að gefa út verð fyrir allt haustið að sinni.
Sig. Jóh.
|
Ný verðskrá dilkakjöts
1. september 2011 |
Í kjöfar verðbreytinga á dilkakjötsmarkaði hefur stjórn SAH Afurða tekið ákvörðun um að hækka verð til bænda sbr. meðfylgjandi verðskrá. Sjá einnig undir "afurðaverð" hér á síðunni.
Sig. Jóh.
|
Mikil hækkun á verði dilkakjöts til bænda
11. ágúst 2011 |
Á sameiginlegum stjórnarfundi SAH Afurða ehf. og SAH svf. sem haldinn var þann 10. ágúst var verð dilkakjöts og ærkjöts til bænda ákveðið. Um verulega hækkun er að ræða frá fyrra ári. Umtalsverðar álagsgreiðslur eru í ágúst og byrjun september. Auk álagsgreiðslna SAH Afurða ehf. greiðir Markaðsráð kindakjöts, 2000 kr. á dilk í viku 33, 1.500 kr. á dilk í viku 34 og 500 kr. á dilk í viku 35.
Fréttabréf verður sent út í næstu viku þar sem gerð verður frekari grein fyrir undirbúningi sláturtíðar.
Sig. Jóh.
|
Sumarslátrun sauðfjár
2. ágúst 2011 |
Boðið verður uppá sumarslátrun sauðfjár hjá SAH Afurðum ehf. frá og með 15. ágúst. Bændur eru hvattir til að hafa samband við sláturhússtjóra. Fjöldi sláturdaga í hverri viku í ágúst ræðst af eftirspurn.
Álagsgreiðslur eru eftirfarandi:
|
SAH Afurðir ehf. |
Markaðsráð kindakjöts |
| Vika 33 |
15% á haustverð |
2.000 kr. á dilk |
| Vika 34 |
15% á haustverð |
1.500 kr. á dilk |
| Vika 35 |
15% á haustverð |
500 kr. á dilk |
Haustverð verður gefið út á næstu dögum, en það verður að fullu samkeppnisfært við verð annarra sláturleyfishafa.
Sig. Jóh.
|
Verðhækkun hrossakjöts
2. ágúst 2011 |
SAH Afurðir hafa fyrir nokkru hækkað verð fyrir fullorðin hross í 150 kr.kg. Þeir sem hafa hug á að slátra fullorðnum hrossum á næstunni eru beðnir um að hafa samband við sláturhússtjóra.
Sig. Jóh.
|
SAH Afurðir ehf. hækka nautgripakjöt
14. júní 2011 |
SAH Afuðir ehf. hafa nú hækkað nautgripakjöt til bænda. Nánari upplýsingar má sjá hér á síðunni. Eftir þessa hækkun eru viðskiptakjör SAH Afurða ehf. enn sem fyrr sambærileg og annarra stærri sláturleyfishafa.
Sig. Jóh.
|
Ársreikningar
12. apríl 2011 |
Þeir innleggjendur sem hafa hug á að fá sendan ársreikning SAH Afurða ehf. eru hvattir til að senda póst á sigurdur@sahun.is og verður reikningurinn þá sendur í pósti. Einnig er hægt að nálgast reikninginn á skrifstofu félagsins.
Sig. Jóh.
|
Uppbót á verð dilkakjöts
7. apríl 2011 |
Stjórnir SAH Afurða ehf. og SAH Svf. ákváðu á fundi sínum í gær að greiða 9 kr.kg. uppbót á innlagt dilkakjöt í haustslátrun 2010. Uppbótin verður reikningsfærð og greidd út til bænda á næstu dögum. Bætt afkoma af útflutningi dilkakjöts gerir þessa greiðslu mögulega.
Sig. Jóh.
|
Fréttir frá aðalfundi
7. apríl 2011 |
Aðalfundur SAH Afurða ehf. og Sölufélags Austur Húnvetninga svf. fór fram í húsum félagsins þann 6. apríl. Fundarstörf voru samkvæmt samþykktum félaganna.
Fram kom að velta SAH Afurða var um 1.570 m.kr. á liðnu ári. Hagnaður fyrir fjármagnsliði nam tæpum 64 m.kr. Eftir fjármagnsliði var hagnaður félagsins 27.7 m.kr. sem er umtalsverður rekstrarbati frá fyrra ári.
Baldvin Sveinsson lét af störfum sem formaður stjórnar SAH svf. og var Björn Magnússon frá Hólabaki, kosinn formaður í hans stað. Gegnir hann jafnframt stjórnarformennsku í SAH Afurðum.
Baldvini voru þökkuð góð störf í þágu félagsins og Björn boðinn velkominn til starfa.
Ekki urðu aðrar breytingar á stjórnum félaganna.
Sig. Jóh.
|
Páskaslátrun og aðalfundur
5. apríl 2011 |
Páskaslátrun sauðfjár fór fram í dag, 5. apríl. Slátrað var um 300 fjár og var flokkun góð og dilkar ágætlega vænir. Aðalfundur SAH Afurða ehf. og SAH svf. verður haldinn í starfsmannahúsi félagsins að Húnabraut 37, á morgun 6. april kl. 13:30. Dagskrá er samkvæmt samþykktum félaganna.
Sig. Jóh.
|
Breyttur opnunartími
28. mars 2011 |
Fram til 1. ágúst nk. verður skrifstofa SAH Afurða ehf. opin frá 8 - 16 mánudaga til fimmtudaga, og 8 - 12 á föstudögum.
Sig. Jóh.
|
| |